Hvað þarf að gera til að hjólreiðar verði raunhæfur kostur fyrir þig?
Við þekkjum það öll að vera föst í viðjum vanans og finna okkur ýmsar ástæður til að viðhalda þeim. En er hægt að hafa áhrif á þig? Viltu skipta um gír? Hvaða hindrar þig í að gera hjólreiðar að lífsstíl þínum?
Formið batnar fljótt við hjólreiðar.
- Hjólaðu rólega í byrjun.
- Veldu eigin hraða og taktu þér tíma.
- Kannaðu umhverfi þitt og finndu hentugustu leiðirnar fyrir þig.
- Líkamsástand þitt mun batna ef hjólreiðar verða hluti af lífsstílnum, kílóin hverfa í framhaldinu.
- Hjólaðu í léttum gír upp brekkur og í miklum mótvindi og einbeittu þér að því að minnka álag á hnén.
Er leiðin svo löng?
- Eftir því sem styrkur þinn eykst breytist hugarfar þitt gagnvart vegalengdum.
- Prófaðu að hjóla í vinnuna og taka strætó heim á kvöldin. Leyfilegt er að taka hjól með í suma vagna.
Skipulegðu hjólreiðarnar í tengslum við almenningssamgöngur. - Hjólaðu til vinnufélaga og verið samferða hluta leiðarinnar, það er gaman að hjóla með öðrum.
Á 15 mín. nærðu að hjóla hálfa borgina.
- Stuttar ferðir taka minni tíma á hjóli en bíl.
- Ferðir sem eru 7-10 km taka álíka langan tíma á bíl og hjóli á annatímum innanbæjar.
- Skoðaðu korterskortið , á 15 mínútum nærð þú að hjóla hálfa borgina.
- Í minni sveitafélögum tekur aðeins nokkrar mínútur að fara þorpið á enda.
- Leitin að bílastæðum er úr sögunni, það sparar tíma.
- Það er mjög skemmtilegt að taka fram úr bílaröðinni á háannatímum.
- Á vef bikecitizens.net má sjá hversu langt þú kemst á mis löngum tíma. Hér má sjá hversu langt þú gætir hjólað frá Hlemm á annars vegar 5 mínútum og hinsvegar 15 mínútum.
En hvaða leið er best?
- Leiðin sem þú ert vön/vanur að fara á bílnum er ekki endilega sú heppilegasta fyrir hjólið.
- Stígar liggja víða þar sem ekki eru götur, t.d. í Fossvogsdal.
- Með Hjólavefsjánni getur þú fengið tillögur að leiðum milli staða. Það þarf bara að draga græna hjólið á staðsetningu þína á kortinu og rauða stopp merkið á áfangastað og vefsjáin teiknar leið fyrir þig.
- Kortið sýnir líka hvar göngustígar liggja og þannig gætir þú stytt leið þína og séð nýja hlið á borginni.
- Nýlega kom bikecitizens.net með sambærilegan vef með hjólavefsjá sem finnur hentuga leið eftir þeim forsendum sem þú velur
- Ef þú ert með snjallsíma getur þú líka náð í appið og fengið leiðsögn jafnóðum.
Góðir geymslustaðir leynast víða
- Góðir geymslustaðir fyrir hjólið leynast víða, t.d. í kompu eða við svalir
- Taktu hjólið inn ef mögulegt er.
- Óskaðu formlega eftir því við atvinnurekanda að hann bæti geymsluaðstöðu fyrir reiðhjól.
Bætt heilsa starfsmanna er allra hagur. - Notaðu tryggan lás til að læsa stellið við eitthvað.
Hjólið mitt er gamalt
- Vertu viss um að hjólið sé í góðu lagi áður en þú ferð af stað, þó sérstaklega bremsurnar.
- Kannski þarf bara að stilla hjólið? Ef það bremsar illa, skiptir illa um gíra eða dekkið rekst í brettið með hávaða eru það smávægilegar viðgerðir.
- Reiðhjól þurfa viðhald líkt og önnur farartæki. Farðu með hjólið þitt í viðgerð og láttu yfirfara það.
- Lærðu að stilla hjólið þitt svo þér líði betur á hjólinu.
- Sækja má upplýsingar um reiðhjólaviðhald á netið.
- Farðu á viðgerðarnámskeið og lærðu að viðhalda hjólinu þínu.
- Fáðu þér nýtt hjól. Það borgar sig fljótt upp í öðrum sparnaði.
Þarf sturtu eftir hverja hjólaferð?
- Hjólaðu rólega í vinnuna svo að þú svitnir minna.
- Þeir sem eru vanir að hjóla styttri leiðir ættu alls ekki að þurfa sturtu frekar en eftir gönguferð.
- Skoðaðu hvort þú sért hugsanlega of mikið klædd/ur á hjólinu, það þarf lítinn fatnað meðan hjólað er.
- Notið svitalyktareyði undir armana.
- Hægt er að taka með sér þvottapoka í vinnuna.
- Athugaðu hvort það er aðstaða annars staðar í húsinu sem þú getur fengið aðgang að.
- Hjólaðu af meiri krafti heim og farðu í sturtu á eftir.
Ég þarf að vera uppáklædd/ur í vinnunni
- Fáðu þér bögglabera og töskur undir föt.
- Fáðu þér góðan bakpoka.
- Hafðu nokkur sett af fötum og 1-2 skópör í vinnunni.
Taktu skyrtur/boli og hrein undirföt daglega með þér. - Hafðu fötin með þér dags daglega, gott er að rúlla upp dröktum, skyrtum og jakkafötum í stað þess að brjóta saman.
- Settu fötin í hreinsun í nágrenni við vinnustað þinn.
Þarf ég sérstök hjólaföt?
- Notaðu þinn venjubundna klæðnað þegar veður og aðstæður leyfa.
- Notaðu það sem þú átt í skápunum.
- Notaðu venjulega skó.
- Bolur og vindheldur jakki duga í flestum veðrum og gott ef loftar aðeins um líkamann.
- Fötin og annar útbúnaður kemur smátt og smátt og endist lengi.
Veðrið og rigningin
- Er veðrið svo slæmt þegar þú ert komin(n) út?
- Reiknaðu með aðeins meiri tíma ef það er mótvindur.
- Hjólaðu í léttum gír eins og þú værir að hjóla upp brekku.
- Áttu ekki vatnshelda flík í fataskápnum? Ef ekki er kominn tími til að eignast hana.
- Ef þú ert í vinnunni þegar byrjar að rigna og ekkert vatnshelt til staðar, taktu þá strætó heim eða fáðu far.
- Njóttu þessa að þjóta heim, blotna á leiðinni og fara í þurrt heima.
- Gerðu ráðstafanir til að mæta íslenskri veðráttu, til dæmis með því að hafa ætíð auðpakkanlegan hlífðarjakka meðferðis.
- Gerðu ráðstafanir til að vera sýnilegur. Notaðu ljós og annan búnað til vera sýnilegur í myrkri og lélegu skyggni.
Ég finn til óöryggis á götunum
- Kynntu þér tækni Samgönguhjólreiða. Sú tækni kennir þér að takast á við umferðina í stað þess að hræðast hana.
- Vertu sýnileg(ur) í umferðinni og taktu þitt pláss.
- Fylgdu ávallt almennum umferðareglum.
- Því fleiri hjólreiðamenn sem nota göturnar til samgangna því meira tillit fá þeir frá ökumönnum.
- Hjólaðu á gangstéttum og stígum ef það eykur öryggiskennd þína.
- Notaðu reiðhjólahjálm ef það eykur öryggiskennd þína.
Ég þarf að snúast í og eftir vinnu
- Fáðu þér bögglabera og töskur á hjólið.
- Skoðaðu einnig farangursvagna og barnakerrur.
- Fáðu þér góðan lás til að geta læst hjólinu þínu með traustum hætti við eitthvað.
- Ræddu við vinnuveitanda þinn og fáðu að ferðast um á hjólinu í vinnutíma.
- Athugaðu hvort atvinnurekandinn vill útvega hjól sem starfsmenn geta notað til snúninga á vinnutíma.
- Skipuleggðu vikuna. Notaðu bílinn einn dag í viku. Gerðu allar útréttingar þann dag og gerðu stórinnkaup í leiðinni.
Það hjólar enginn á mínum vinnustað
- Láttu það ekkert á þig fá og haltu þínu striki.
- Þú þarft ekki að vera lengi einn á báti, áður en þú veist af ertu kominn með félagsskap.
- Það er mikil hjólavakning núna og margir að hjóla allan ársins hring.
Hvað geri ég með ótal gíra?
- Gírar auðvelda hjólreiðar, léttur gír gerir brekkur auðveldar og þungur gír gefur góðan hraða.
- Stilltu keðjuna á miðtannhjólið að framan. Einbeittu þér að því að stilla afturtannhjólin í fyrstu.
- Litla tannhjólið að framan er fyrir brekkur, „lágt drif“ og er notað með þremur léttustu gírunum að aftan.
- Stóra tannhjólið er fyrir hraða siglingu, „hátt drif“ og er notað með þremur þyngstu gírunum að aftan.
- Fáanleg eru hjól með innbyggðum gírum. Fleiri gírar gera hjólreiðar auðveldari. 7 gírar og yfir duga í flest.
Hvað með þessar handbremsur?
- Lærðu að treysta handbremsunum.
- Hægri bremsan er að aftan, vinstri bremsan að framan.
- Bremsaðu bæði að framan og aftan
- Aldrei bremsa bara að framan
- Láttu skipta reglulega um bremsupúða.
- Hjól með fótbremsum eru líka fáanleg.
Hvað geri ég í haust þegar fer að kólna?
- Bætir á þig hlýrri flíkum og finnur góða vetrarskó.
- Kaupir þér öflug ljós og lætur setja nagladekk undir.
- Og hjólar svo líka um veturinn. Engir gluggar að skafa.
Hvað með mengunina?
- Ökumenn anda að sér meiri mengun en hjólreiðamenn sem sitja ofar og lungu þeirra hreinsa sig vegna hreyfingarinnar öfugt við lungu bílstjóranna.
Konur og karlar eru ekki sköpuð eins!
- Konur hafa styttri búk og lengri fótleggi en karlar.
- Það má aðlaga karlahjól konum:
- Breidd stýris má minnka í samræmi við breidd herða.
- Setja stýrið á styttri og/eða hærri stýrisarm (stamma) ef stellingin á hjólinu er ekki nógu þægileg.
- Skipta karlahnakkinum út með breiðari kvennahnakk.
Guðný Einarsdóttir og Páll Guðjónsson