Svipmyndir frá Tweed Ride Reykjavík 2026 þar sem hjólað var í skrúðreið um Reykjavík þann 6. júní 2026. Myndir: Hrönn Harðardóttir.
Hin árlega Tweed Ride Reykjavík skrúðreið sem Reiðhjólaverzlunin Berlin stendur fyrir var farin 6. júní 2026. Aðalmálið er að klæða sig upp í gamaldags fín föt (sirka 1930 - 1960) og hjóla saman. Að lokum kjósa þátttakendur fallegasta hjólið, bezt klædda herramanninn og bezt klæddu dömuna.