Taktu þátt í þessum skemmtilega leik og þú gætir öðlast æsku, hreysti, hamingju og langlífi*.
Prófaðu að leysa hvert atriði á bingóspjaldinu og merktu við jafnóðum. Í hverri upplifun er jafnframt fólgin verðlaun, njóttu þeirra vel.
Þegar þú hefur klárað allt spjaldið ættir þú að sjá hversu auðvelt er að tileinka sér reglulegar hjólreiðar og með þeim vinnur þú þér inn stærstu vinningana. Það þarf ekki nema samtals um 30 mínútur á dag og þó það sé minna hefur það strax drjúg áhrif á heilsuna.
Æska: Þeir sem hjóla reglulega hafa þrek á við þá sem eru 10 árum yngri.
Hreysti: Þeir sem hjóla reglulega eru hraustari en hinir og áhrifin eru víðtæk. Ekki aðeins veikjast þeir sjaldnar heldur hefur hreyfingin fyrirbyggjandi áhrif á lífsstílssjúkdóma nútímans s.s. ákveðnum krabbameinum, hjartasjúkdómum, ofþyngd og fl.þ.h.
Hamingja: Þeir sem hjóla reglulega erinda sinna eru ánægðari á ferðum sínum en þeir sem notast við aðra fararmáta. Hreyfingin hefur líka áhrif á hamingjuna, þeir sem hana stunda eru líklegri til að finna hamingjuna. Einnig hættir þeim sem hjóla reglulega síður við þunglyndi og fleiri geðsjúkdómum.
Langlífi: Þeir sem hjóla reglulega lifa lengur og eru hraustari í ellinni. Það hefur jafnvel verið reiknað að fyrir hverja stund sem er hjólað lengist lífið sem því nemur.
*Allt eru þetta niðurstöður rannsókna sem má lesa hér fyrir neðan.
Hér er PDF útgáfa til að prenta út: Hjólabingó PDF
*Hér eru nokkrar þeirra vönduðu rannsókna sem við vísum til og sýna fram á ótvíræða kosti hjólreiða:
Reglulegar hjólreiðar geta gefið þér líkamshreysti á við þá sem eru 10 árum yngri.
Í rannsókn Tuxworth W, Nevill AM, White C, Jenkins C, 1986 segir meðal annars: Áhrifaþáttur hjólreiða á líkamshreysti reyndist stærri en allar aðrar breytur tengdar lífsstíl sem kannaðar voru í rannsókninni. Líkamshreysti þeirra sem hjóluðu stundum mældis sambærileg þeirra sem voru fimm árum yngri en hjá þeim sem hjóluðu reglulega mældist líkamshreystin á við þá sem voru tíu árum yngri.
Tuxworth W, Nevill AM, White C, Jenkins C, 1986.Health, fitness, physical activity and morbidity of middle aged male factory workers.British Journal of Industrial Medicine 1986 Nov;43(11):733-53.
Rannsóknir sýna að reglulegar hjólreiðar eru árangursríkasta leiðin til að lengja lífið, og það á líka við um fólk sem stundar aðra hreyfingu.
Þetta var t.d. niðurstaða einnar stærstu og vönduðustu rannsóknar á samgönguhjólreiðum hingað til þegar Copenhagen Center for Prospective Population Studies* fylgdist með um 30.000 körlum og konum á aldrinum 21 - 90 ára í 14 ár.
* Andersen LB, Schnohr P, Schroll M, Hein HO. All-cause mortality associated with physical activity during leisure time, work, sports, and cycling to work. Arch Intern Med, 2000 Jun 12;160(11):1621-8.
Það voru niðurstöður vísindamanna sem skoðuðu ferðavenjur 50.000 einstaklinga í Hollandi*. Þar í landi hjólar almenningur um 75 mínútur vikulega og er það fjórðungur allra ferða. Þeir nýttu sér m.a. HEAT reiknivél Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnarinnar.
Hér er frétt sem fjallar um rannsóknina: Riding a bike for an hour extends cyclist's life by same time, say Dutch researchers og hér er önnur frá Háskólanum í Utrecht: Dutch bikers live six months longer
2013 voru á málþingi Innanríkisráðuneytisins um samgöngumál og almenningssamgöngur kynntir útreikningar með þessari sömu reiknivél sem sýndu fram á að hjólreiðar á Íslandi kæmu í veg fyrir fimm ótímabær dauðsföll árlega og að heilsufarsávinningurinn næmi um einum milljarði á ári. Sjá frétt hér.
* Elliot Fishman, Paul Schepers, and Carlijn Barbara Maria Kamphuis. Dutch Cycling: Quantifying the Health and Related Economic Benefits. American Journal of Public Health: August 2015, Vol. 105, No. 8, pp. e13-e15.
doi: 10.2105/AJPH.2015.302724
Í nýlegri könnun vísindamanna við King’s College London og The University of Birmingham, Englandi var hópur fólks á aldrinum 55 til 79 ára sem æfðu hjólreiðar reglulega valinn og mælt ýmislegt svo sem þol, þrek, vöðvamassi, efnaskipti, jafnvægi, minni, viðbragð, beinþynning og fl. Enginn þessara mælikvaðra gáfu skýr merki um aldur viðkomandi og flestir mældust á við fólk sem var mikið yngra.
Hér er grein úr New York Times sem fjallar um þessa rannsókn: How exercise keeps us young og önnur úr The Daily Mail: Serious cycling 'keeps you young'
*An investigation into the relationship between age and physiological function in highly active older adults Ross D. Pollock, Scott Carter, Cristiana P. Velloso, Niharika A. Duggal, Janet M. Lord, Norman R. Lazarus andStephen D. R. Harridge
Almennt er ráðlagt að hreyfa sig sem nemi 30 mínútum daglega eða 150 mínútur í hverri viku en samkvæmt nýrri viðamikilli rannsókn frá Taiwan kom í ljós að þó hreyfingin sé aðeins 15 mínútur daglega hafi það veruleg áhrif á heilsuna og geti aukið lífslíkurnar um þrjú ár.
* Minimum amount of physical activity for reduced mortality and extended life expectancy: a prospective cohort study. Dr Chi Pang Wen, MD, Jackson Pui Man Wai, PhD
Vísindamenn greindu gögn úr heilsufarskönnunum í Kanada yfir 15 ára tímabil og komust að þeirri niðurstöðu að greinileg langtímaárhrif eru á milli hamingju og hreyfingar. Þeir sem stunduðu hreyfingu voru mikið líklegri til að vera líka hamingjusamir. Og þeir sem voru ekki hamingjusamir en tóku sig á voru mun líklegri til að hafa fundið hamingjuna í næstu könnun á eftir en þeir sem völdu viðvarandi hreyfingarleysi.
* Long-term association between leisure-time physical activity and changes in happiness: analysis of the Prospective National Population Health Survey.
Wang F, Orpana HM, Morrison H, de Groh M, Dai S, Luo W.
Þeir sem hjóla eða ganga til vinnu líður betur en þeim sem keyra milli staða og sýndi það sig líka hjá þeim sem skiptu um fararmáta. Þetta voru niðurstöður Adam Martin hjá University of East Anglia sem rannsakaði gögn um 18.000 breta yfir 10 ára tímabil.
Rannsóknin staðfesti jafnframt niðurstöður annara rannsókna um heilsufarsávinning hjólreiða og göngu.
Hér er frétt BBC um þessa könnun: Walking or cycling to work 'improves well-being'
* Does active commuting improve psychological wellbeing? Longitudinal evidence from eighteen waves of the British Household Panel Survey
Adam Martina, Yevgeniy Goryakina, Marc Suhrckea
Journal of Public Health birti nýlega grein um breska rannsókn sem sýndi fram á að þeir sem fléttuðu hjólreiðum inn í lífstíl sinn með því að nota reiðhjól til samgangna voru fjórfalt líklegri en aðrir til að ná ráðlagðri vikulegri hreyfingu eða sexfalt líklegri ef þeir bjuggu í London. Alþjóða heilbrygðistofnunin WHO ráðleggur 150 mínútur af hóflegri hreyfingu vikulega eða 75 mínútur af stífri hreyfingu eða bland þar af.
Niðurstöðurnar voru fengnar með greiningu gagna úr The English Active People Survey sem er sú stærsta í Evrópu með 160.000 símaviðtölum árlega í yfir 10 ár.
Quantifying the contribution of utility cycling to population levels of physical activity: an analysis of the Active People Survey
Glenn Stewart, Nana Kwame Anokye, Subhash Pokhrel
J Public Health (Oxf) (2016) 38 (4): 644-652.
DOI: https://doi.org/10.1093/pubmed/fdv182
Published: 11 December 2015
Conclusion
People who undertook utility cycling were four times as likely to meet current physical activity recommendations as those who did not undertake such cycling, even after controlling for other underlying population characteristics. In inner London where investments in cycle infrastructure have taken place, this likelihood appears to rise to six times. As utility cycling has a tremendous potential to both increase population levels of physical activity and reduce the external costs of motorized transport, promotion of utility cycling therefore appears to be a pragmatic policy option to public health decision-makers.
Sjá líka grein í Momentum Magazine sem fjallaði um rannsóknina.
A Study Finds Cyclists to Be Six Times Healthier than Other Commuters
https://momentummag.com/london-bike-commuters-are-six-times-healthier-than-other-commuters/